Japanskir dagar

Print

Dagana 15. til 20. september verða japanskir dagar hjá okkur á Sushi Samba.  Of af því tilefni fáum við til okkar í heimsókn Íslandsvininn og alþjóðlega matreiðslusnillinginn
Kaz (Kazuhiro) Okochi.2015+7

Á síðustu 25 árum hefur Kaz unnið sér nafn í matreiðsluheiminum með að endurskapa hefðbunda japanska rétti með skemmtilegu “tvisti” – eitthvað sem hann kallar sjálfur“Freestyle Japanese Cuisine”

Kaz stofnaði KAZ Sushi bistro í Washinton DC árið 1999.  Hefur staðurinn unnið til fjölda verðlauna og meðal fastagesta eru þekktir stjórnmálamenn og alþjóðlegar stórstjörnur.

Japanskir_matsedill_heimasida_FB-20

Um KAZ

Kaz er fæddur og uppalin í Nagoya, Japan. Hann hefur frá barnæsku elskað að elda og langaði aldrei um að gera neitt annað í lífinu en verða matreiðslumaður. Eftir að hafa klárað listnám í Oklomahoma 1982 snéri hann aftur til Japans til að læra franska matargerð við Tsuji Culinary Institute, einn af fremstu matreiðsluskólum Japans. Eftir námið vatt hann kvæði sínu í kross og kláraði fimm ára nám í sushi og blöðrufiski (blowfisk) í Osaka.

 Árið 1988 lét Kaz gamlan Ameríku draum rætast og flutti til Washington D.C. Þar byrjaði Kaz að þróa sinn eigin matreiðslustíl undir áhrifum frá mörgum af bestu matreiðslumönnum Evrópu og Bandaríkjana t.d. Jean-Lois Paladin, Michel Richard, Roberto Donna, Patrick O’Connell, Jose Andres og mörgum fleiri.

Árið 1999 opnaði hann KAZ sushi Bisto í miðbæ Washington, nálægt Hvíta húsinu, World bank og George Washington háskólanum. Staðurinn er einn af vinsælustu japönsku veitingahúsunum í Washington.

Með því að blanda saman alþjóðlegri tækni, bragði og framsetningu spegla réttir Kaz það fjölmenningar samfélag sem Washington er, en á sama tíma er hann trúr japönskum rótum sínum.