Sushi Workshop Sushi Social hafa svo sannarlega slegið í gegn og við erum hrikalega spennt að getað byrjað aftur 2021.
Á námskeiðinu geta allir tekið byrjandaskrefin í að verða sushi-meistarar og smakkað gómsætt sushi með léttvíni.
Workshopið er frábært fyrir sushi unnendur og hentar fyrir pör, vina- og starfsmannahópa.
Um kennslu sér Daníel Cochran yfirmatreiðslumaður ásamt sushisnillingum Sushi Social.
Á námskeiðinu fá þátttakendur almenna fræðslu um sushi og læra að rúlla sína eigin maki rúllur.
Smakkaðar eru fjölbreyttar tegundir af sushi parað með vínglasi og auðvitað haft alveg hrikalega gaman.
Sushi sem við gerum saman:
- Surf´n turf
- Grænmetisrúlla
- 3 tegundir af nigiri
- Hot Maguro
Þátttakendur taka heim allt sushi sem þeir gera á workshopinu
– 3 tegundir af rúllum og 3 tegundir af nigiri.
Workshopin eru haldin á þriðjudögum,
á dagsetningunum hér fyrir neðan,
milli 16 og 18.30 og kosta 8.900 kr. á mann. Aldurstakmark er 20 ár.
Dagsetningar 2021:
18. janúar
01. janúar
15. febrúar
01. mars
15. mars
29. mars
Skráning og miðasala á námskeiðin fara fram á tix.is:
https://tix.is/is/event/9243/sushi-workshop/
Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 568-6600.